-
Hornbjargsviti var byggður árið 1930 og hefur síðan haft
sérstöðu í huga Íslendinga.
-
Bara nafnið, kallar fram í hugann myndir frá
Hornströndum, blómum skrýddar bæjarrústir eða þverhnípt
björg, iðandi fuglalíf og refur sem horfir eftir bráð.
-
Nú er rekin ferðaþjónusta í þessu sögufræga húsi, í
einstöku umhverfi.
-
Frá Látravík eru góðar gönguleiðir vítt og breitt um
Hornstrandir, sérstaklega í Hornvík, á Hornbjarg og
Kálfatinda.
-
Þar er gistiaðstaða fyrir allt að 50 manns.
-
Þar er gott eldhús með öllum búnaði, þar eru rafmagns og
gaseldavélar.
-
Þú tekur með þér hráefni í matargerð, annað er á
staðnum.
-
Við höfum gott kolaútigrill, þú hefur með þér kol.
-
Það er sofið í rúmum og kojum í 7 aðskildum herbergjum,
þú hefur með þér svefnpoka eða rúmföt.
-
Það er sturta í húsinu sem tekur við 100 kr. mynt.
-
Góð aðstaða er í húsinu til að þurka blaut föt og skó.
-
Einnig bjóðum við upp tjaldsvæði með aðgang að
vatnssalernum, góðu vatni og inniaðstöðu í gömlu
útihúsi.
-
Við viljum ekki að fólk taki með sér hunda í Látravík,
þar er refurinn okkar húsdýr og við viljum ekki að
gestir okkar missi af þeirri upplifun að sjá refapar með
allt að 9 yrðlinga leika sér í nokkurra metra fjarlægð
frá fólki við húsið.
-
Ef ólendandi er í Látravík vegna veðurs, er lent í
Hornvík og gengið yfir til okkar. Þetta hefur einu sinni
gerst á 4 árum.
-
Við bjóðum ykkur velkomin og munum aðstoða ykkur við val
á gönguleiðum og útbúnaði. Það er líka hægt að koma og
vera kyrr í Látravík, það er engin þörf á að æða um öll
fjöll ef þér líður þannig, við vitum að þér á ekki eftir
að leiðast!
-
Það er orðið ákaflega vinsælt að sigla úr Norðurfirði í
Látravík og gista þar 2-4 nætur, skoða Hornbjarg,
Hornvík og næsta nágrenni. Ganga síðan suður strandir í
Hrollaugsvík, Smiðjuvík, Barðsvík og gista í Bolungavík.
Ganga þaðan í Furufjörð, Þaralátursfjörð og í
Reykjarfjörð. Þaðan er svo hægt að sigla aftur í
Norðurfjörð. Þetta er 4 til 7 daga ferð, gist í húsum
eða tjöldum, eða bæði. Hægt er að fá allan farangur
fluttan á milli staða.
Með kveðju, Ævar og Una Lilja.